Skilmálar

Skilmálar
Kt 630124-1900
vsknr: 151961
 
Almennt


Þessi vefsíða er í eigu Nál og tvinna ehf. Ef þú ferð á vefsíðuna og leggur fram
pöntun samþykkir þú þessa skilmála.


Vinsamlega lestu skilmálana vandlega þar sem þeir innihalda mikilvægar
upplýsingar. Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við
okkur.


Við hjá Nál og tvinna ehf áskiljum okkur rétt til að breyta, fjarlægja eða bæta við
vefsíðuna og skilmála þessa án sérstakra tilkynninga. Skilmálarnir sem eru í gildi
þegar pöntun er gerð, gilda um viðkomandi pöntun, með öllum þeim breytingum
og viðaukum sem kunna að hafa verið gerðir á þeim. Skilmálarnir skulu vera í
samræmi við landslög Íslands, tilskipanir og reglur Evrópska Efnahagssvæðisins
eftir því sem við á.


Persónuvernd og trúnaður


Við hjá Nál og tvinni ehf heitum þér fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem
þú gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki
afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda
ákvæði laga um húsgöngu og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup
nr. 46/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr.
48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka
vöru á sér stað.

Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga og að farið sé með allar
persónuupplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og
persónuverndarlög.

Við leggjum áherslu á að vinnsla á persónugreinanlegum upplýsingum sé
takmörkuð að því marki að hægt sé að veita þá þjónustu sem viðskiptavinir biðja
um. Að vinnsla upplýsinga um viðskiptavini sé gerð á ábyrgan, öruggan og
löglegan hátt.

Við leggjum áherslu á að allar upplýsingar um viðskiptavini sem látnar eru í té
eða sóttar með þeirra leyfi til þriðja aðila séu eingöngu sóttar í þeim tilgangi að
hægt sé að veita viðskiptavinum þá þjónustu sem þeir biðja um.

Við leggjum áherslu á að viðskiptavinir séu eigendur að sínum eigin
persónuupplýsingum, hafi einir aðgang að slíkum upplýsingum, ásamt starfsfólki
Nál og tvinna ehf og nauðsynlegum þriðju aðilum. 


Persónulegar upplýsingar sem við söfnum


Mögulegt er að söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem
nafni, heimilisfangi, netfangi, símanúmeri og kreditkortanúmeri, í tengslum við
afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis
skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að
koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar, svo
sem kreditkortanúmer og heimilisfang vegna reiknings, og
einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang og símanúmer og
viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengd upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til
að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir.

Verð


Verð á vefsíðunni eru gefin upp í íslenskum krónum. Allt verð á vefsíðunni er birt
með fyrirvara um innsláttarvillur. Einnig áskilur Nál og tvinni ehf sér rétt til að
hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. 

Nál og tvinni ehf áskilur sér rétt til að falla frá afhendingu vörunnar ef t.d um
skýra verð villu er að ræða, í slíkum tilvikum ber Nál og tvinni ehf ábyrgð á að
tilkynna strax um villuna og leiðrétta verð. Við reynum að sjá til þess að réttar
vörumyndir og upplýsingar séu gefnar upp í vefverslun okkar en mikilvægt er að
hafa í huga að möguleiki er á minniháttar lita mun milli vöru og myndar.

Öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl/innsláttar eða prentvillu.

Greiðsla

Nál og tvinni samþykkir eftirfarandi greiðslumáta fyrir pantanir á vefsíðu:
Millifærslur og greiðslubeiðnir (sms/tölvupósti).

Afhending


Hægt er að sækja pantanir á opnunartíma í verslun Nál og tvinna ehf á að
Bíldshöfða 18, 110 Reykjavík.

Einnig er hægt að fá vöruna senda með póstinum, og greiðir viðtakandi fyrir
flutninginn.

Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta.

Hægt er að senda vöruna til baka. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki
endurgreidd og ber viðkomandi að borga undir pakkann ef hann ætlar að skila
eða skipta vörunni póstleiðis. 

Skilafrestur


Samkvæmt reglum um rafræn kaup, mátt þú hætta við kaupin innan 14 daga að
því tilskildu að vörunni sé skilað í upprunalegum umbúðum og í því ástandi sem
hún kom til þín. Greiðslukvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með ef um
vöruskil er að ræða. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði
eru uppfyllt. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um er
að ræða ranga/gallaða vöru.


Endurgreiðsla er gerð á sama kort kaupin áttu sér stað upphaflega og athugið að
endurgreiðsla getur tekið allt að 5 virka daga til að ganga í gegn. Þetta getur
verið mismunandi eftir kortafyrirtækjum og getum við því miður ekki haft áhrif á
þetta.


Útsöluvörur sem verslaðar eru má skila/skipta innan 14 daga frá kaupum gegn
annarri vöru eða inneignarnótu.


Ef senda þarf vöru til baka greiðist sá sendingarkostnaður af viðskiptavini.
Afsláttarkóðar eiga ekki við útsöluvörur.


Ábyrgðarskilmálar


Ef vara telst gölluð munum við gera við hana, skipta henni eða endurgreiða allt
án kostnaðar fyrir viðskiptavin. Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af
vanrækslu eða eðlilegu sliti sem verður við notkun og eða sökum aldurs
vörunnar.


Svo hægt sé að meta hvort vara sé gölluð þarf að hafa samband við okkur hjá

Nál og tvinna ehf,
Bíldshöfða 18, 110 Rvk
S. 588-9977
nalogtvinni@nalogtvinni.is